MENNINGAR- og friðarsamtökin MFÍK skora á foreldra og forráðamenn, ömmur, afa, frænkur og frændur og aðra þá sem kaupa gjafir handa börnum og ungmennum, að vera meðvituð um að það er á ábyrgð fullorðinna hvernig heimur snýr að börnum. Börn eiga að fá að vera börn.
Við vörum við tísku, sem rutt hefur sér til rúms hér á landi, að klæða litlar stúlkur í magaboli, G-streng og annað slíkt.
Við fögnum framtaki SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) sem nýlega gáfu út bækling með leiðbeiningum um val á tölvuleikjum. Við bendum á að sömu vandvirkni er einnig þörf við val á öðrum leikföngum. Forðumst að kaupa leikföng sem gera stríð og ofbeldi aðlaðandi.
Hann fékk…en hún fékk…
Hvaða hlutverk ætlum við uppvaxandi kynslóð?
Við hvetjum alla til að taka uppeldishlutverkið alvarlega og standa vörð um bernskuna.
MARÍA S. GUNNARSDÓTTIR,
Garðastræti 13, Reykjavík.
Frá Maríu S. Gunnarsdóttur:
mbl.is Föstudaginn 23. desember, 2005 – Bréf til blaðsins
Leave A Comment
You must be logged in to post a comment.