Foreldrajafnrétti er mannréttindafélag sem stendur fyrir rétti barna til beggja foreldra sinna og jöfnum rétti foreldra til að sinna foreldrahlutverki sínu óháð fjölskyldugerð. Félagið vill stuðla að málefnalegri og upplýstri umræðu um stöðu barna og foreldra, á þann hátt að löggjafinn, framkvæmda- og dómsvaldið tryggi börnum að sú meginregla Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barns sé virt að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn og koma því til þroska.
Foreldrajafnrétti er skráð almannaheillafélag á Íslandi og viðurkennt óhagnaðardrifið góðgerðarfélag á alþjóðavísu. Enskt heiti félagsins er Equal Parenting Iceland.
Lögmaður félagsins, Hilmar Garðars Þorsteinsson, Málsvara lögmannsstofu, býður upp á ókeypis lögfræðiráðgjöf.
Félagið veitir foreldrum og börnum í vandræðum símaráðgjöf í málum sem snerta sameiginlegt uppeldishlutverk foreldra.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat.
Félagið veitir foreldrum og börnum í vandræðum símaráðgjöf í málum sem snerta sameiginlegt uppeldishlutverk foreldra.
Foreldrajafnrétti
www.foreldrajafnrétti.is
Hafðu samband:
foreldrajafnretti@foreldrajafnretti.is
Sími:
419 6000
© Foreldrajafnrétti, allur réttur áskilinn
Foreldrajafnrétti er stoltur þátttakandi í næstu alþjóðlegu ráðstefnu PASG um foreldraútilokun sem haldin verður í Osló 4-6. september 2024. Deilið endilega með fagaðilum og öðrum sem vinna að málum þar sem börn missa tengsl við foreldri í kjölfar skilnaða. Skráning fer fram á síðu www.pasg.no.We are excited to share news about the next International Conference on Parental Alienation, hosted by PASG (Parental Alienation Study Group) in Norway. Save the date: September 4-9 in Oslo, Norway. Join a global network of specialists and engage in vital conversations about this important topic. Early bird spots are available at www.pasg.no before May 1st. ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Tori Lynn lýsir í þessu einlæga viðtali foreldraútilokun sem hún varð fyrir í æsku og áhrifunum sem hún hafði á sjálfsmynd hennar. Í frásögninni koma fram mörg einkenni útilokunarinnar fyrir utan þau augljósu að móðirin sleit tengsl hennar við föðurinn; baktalið um hann, hvernig móðirin setur Tori í fullorðinshlutverk gagnvart sér og varpar ábyrgð á hana, afneitar henni fyrir að líkjast föður sínum og yfirgefur hana svo þegar henni hentar.
Tengslaröskunin sem Tori er greind með sem afleiðing af þessu ofbeldi hamlar getu hennar til að geta átt í nánum samböndum um ókomna tíð þar sem hún getur illa treyst fólki tilfinningalega. Tengslarof er alvarleg afleiðing foreldraútilokunar fyrir börn og getur haft afar neikvæð áhrif á framtíðarhamingju þeirra.
Tori segir móður sína kljást við andleg veikindi en skilgreinir það ekki nánar. Hegðun móðurinnar er hins vegar mjög svipuð hegðun annarra útilokunarforeldra sem sjaldnast hafa verið greindir með andleg veikindi. Rannsóknir sýna að þeir sem beita foreldraútilokun eiga oft við sjálfhverfu eða jaðarpersónuleikahegðun að stríða.
Í viðtalinu kemur einnig sterkt fram hvað faðirinn hefur saknað dóttur sinnar mikið og þráð tengsl við hana aftur. Foreldrar sem missa börn sín í foreldraútilokun búa við djúpa og oft langvarandi sorg sem yfirleitt er ekki viðurkennd í samfélaginu. Lítill skilningur á þessu flókna mynstri gerir það að verkum að þeir fá oft ekki þann stuðning sem þeir þurfa.
Útilokaðir foreldrar þjást í hvert skipti sem barnið fagnar tímamótum sem þeir fá ekki að taka þátt í; afmælum, tómstundum, jólum, páskum o.s.frv. Þjáning þeirra er oft það mikil að hún skaðar getu þeirra til að taka þátt í samfélaginu, vinnuframlag minnkar og þessir foreldrar eiga meiri hættu á að þjást af þunglyndi, sjálfsvígshugsunum og veikindum vegna áfallsins - sem er síendurtekið.
Viðbrögð vel meinandi vina hjálpa stundum ekki eins og: „Þú þarft bara að halda áfram og gleyma þessu. Vertu í nútíðinni, ekki fortíðinni,“ „þetta getur ekki verið svona slæmt,“ eða eitt af því versta; „kannski gerðirðu eitthvað til að eiga þetta skilið.“ Vandamálið fyrir útilokaða foreldra er einmitt það að þeir - öfugt við aðra foreldra - mega helst ekki vera mannlegir og gera eðlileg mistök án þess að eiga á hættu að það sé notað gegn þeim til að auka á útilokunina. Ekki bara af hálfu útilokunarforeldrisins, því stundum auka stofnanir sem vinna með þessi mál á útilokunina vegna vanþekkingar á foreldraútilokunarfræðunum.
Hjá útilokaða foreldrinu lifir oft vonin um að þegar barnið verði fullorðið, 18 ára, hafi það loksins frelsi frá hinu foreldrinu til að hafa samband. Hins vegar hefur viðhorfsstýring útilokunarforeldrisins yfirleitt virkað og barnið er orðið hluti af hinu eitraða mynstri. Það getur því tekið langan tíma fyrir uppkomið barn að komast út úr því og sjá útilokaða foreldrið sem öruggt, elskandi og að það sé til staðar fyrir það.
Tori tapaði ekki bara föður sínum, heldur allri föðurfjölskyldunni í tæpa tvo áratugi. Stórfjölskyldu sem hefði getað veitt henni stuðning í æsku, aukið tengslagetu hennar, verið fyrirmynd að mörgu leiti og bætt við fjölbreytileika í lífi hennar.
Hlutverk stjúpforeldra getur skipt sköpum og í lífi Tori reyndust stjúpfaðir hennar og síðar stjúpmóðir henni einstaklega vel. Hún býr að því.
Takk fyrir að deila sögu þinni Tori. Hún skiptir miklu máli fyrir þá sem lenda í þessari tegund ofbeldis ❤️
Foreldrajafnrétti vill einnig þakka Auði Ösp Guðmundsdóttur, blaðamanni, fyrir vandaða umfjöllun um þetta viðkvæma málefni. ... See MoreSee Less
„Hæ, ég held að þú sért blóðfaðir minn“ - Vísir
www.visir.is
Stærsti draumur Tori Lynn Gísladóttur rættist um síðustu jól. Þá voru hún og bandarískur blóðfaðir hennar sameinuð á ný, eftir fimmtán ára aðskilnað. Sagan þar á bak við er fl...5 CommentsComment on Facebook
❤️
Takk fyrir þessi skrif og ég dáist að hugrekki þessarar flottu, ungu konu að stíga fram. Foreldraútilokun og/eða tálmun er viðurstyggilegt ofbeldi og það þarf að taka á því í okkar samfélagi.
Takk fyrir góða grein 🥺❤️
Og ég vil þakka Foreldrajafnrétti fyrir að deila þessari grein með góðum útskýringum.
Takk fyrir þessa góðu grein og birtingu ykkar Foreldrajafnrétti á þessu tálmunar og ofbeldis máli.
View more comments
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, viljum við senda sérstakar kveðjur til þeirra kvenna sem eru að glíma við foreldraútilokun eða hafa orðið fyrir slíku ofbeldi sem börn. Foreldraútilokun hefur áhrif á mæður jafnt sem feður og helmingur barnanna sem verða fyrir þessu ofbeldi eru stúlkur. Á þessum mikilvæga degi er hugur okkar með öllum konum sem berjast fyrir réttindum sínum og velferð, þar á meðal þeim sem standa frammi fyrir þeirri erfiðu áskorun sem foreldraútilokun er. ... See MoreSee Less
Learn More
Forsíða - Foreldrajafnrétti
foreldrajafnretti.is
Foreldrajafnrétti er mannréttindafélag sem stendur fyrir rétti barna til beggja foreldra sinna og jöfnum rétti foreldra til að sinna foreldrahlutverki sínu0 CommentsComment on Facebook
Námskeið um foreldraútilokun hefjast í næstu viku og eru ætluð foreldrum og aðstandendum sem og fagfólki sem hefur aðkomu að skilnuðum þar sem börn eiga í hlut. Nánari upplýsingar er að finna á foreldrajafnretti.is/namskeid/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Foreldrajafnrétti býður nú upp á fræðslunámskeið um foreldraútilokun. Námskeiðin hefjast í febrúar og eru ætluð bæði foreldrum og aðstandendum sem og fagfólki sem hefur aðkomu að skilnuðum þar sem börn eiga í hlut. Nánari upplýsingar er að finna á foreldrajafnretti.is/namskeid/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Virðum umgengnisrétt barna.
Um áramót fá ekki öll börn að kasta kveðju á fjölskyldu sína. Börn sem eru þolendur foreldraútilokunar eru oft hindruð í að hafa samband við annað foreldri sitt, afa eða ömmu og jafnvel allan þann helming fjölskyldu sinnar. Foreldraútilokun getur skaðað börn varanlega.
Myndband þetta er framleitt af Börnin okkar árið 2016. ... See MoreSee Less
Learn More
0 CommentsComment on Facebook